Frétt

Vanmerktir ofnæmisvaldar í ítölskum Rana sósum

Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir skelfiski, fiski, mjólk, sellerí, hnetum, byggi eða hveiti við þremur Rana sósum frá K. Karlssyni ehf.  Sósurnar innihalda þessa ofnæmisvalda án þess að þeir séu merktir á vörunni eða eru merktir á ítölsku.

Fyrirtækið Karl K. Karlsson  -  Bakkus ehf (Kalli K) hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.

Innköllunin á við allar lotur og best fyrir dagsetningar á neðangreindum vörum:

  • Vörumerki: RANA
  • Vöruheiti: Rana Pesto,  Rana sveppasósa, Rana ostasósa
  • Framleiðandi: Giovanni Rana
  • Innflytjandi: Karl K. Karlsson  -  Bakkus ehf
  • Framleiðsluland: Ítalía
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Allar framleiðslulotur/dagsetningar
  • Geymsluskilyrði: Kælivara
  • Dreifing: Verslanir Hagkaupa, Nettó, Extra24 og Melabúðin.

Tekið skal fram að varan er skaðlaus þeim sem ekki eru með ofnæmi eða óþol. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru með ofnæmi eða óþol fyrir skelfiski, fiski, mjólk, sellerí, hnetum, byggi eða hveiti eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í verslunina þar sem hún var keypt.

Nánari upplýsingar veitir Kalli K í síma 540-9000.  Einnig er hægt að senda á netfangið;  soludeild@kallik.is.

Athugið vegna Covid eru skrifstofur félagsins lokaðar fyrir heimsóknum.