Frétt

Undanþága frá reglugerð um hávaða vegna vinnu við Fossvogsbrú

Ráðherra veitir Ístaki hf. undanþágu frá 9. gr. viðauka reglugerðar nr. 724/2008 um hávaða, þar sem fyrirtækinu er veitt heimild til að starfa á nóttinni við framkvæmdir við uppbyggingu Fossvogsbrúar.

Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytið hefur veitt fyrirtækinu Ístaki hf. undanþágu frá 9. gr. viðauka reglugerðar nr.724/2008 um hávaða, en fyrirtækið óskaði eftir heimild til framkvæmda að næturlagi á samtals 28 dögum fyrir tímabilið frá útgefnu leyfi og til 2. júlí 2026.
Undanþágan er bundin eftirfarandi skilyrðum:

  1. 1. Hún skal gilda fyrir framkvæmdir á samtals 28 dögum á tímabilinu frá og með dagsetningu undanþágunnar til og með 2. júlí 2026.
  2. Leitast skal við að halda næturvinnu í lágmarki og tilkynna íbúum í nærliggjandi hverfum sérstaklega þegar fyrirséð er að vinna þurfi fleiri en eina nótt í röð.
  3. Framkvæmdaaðili skal standa að hávaðamælingum á framkvæmdatíma og er skylt að miðla þeim mælingum til viðkomandi stjórnvalda.
  4. Framkvæmdaaðili skal hafa ítarlegar upplýsingar um framkvæmdina og áhrif hennar, þ.m.t. hávaða og ónæði, á vefsíðu þar sem almenningur geti nálgast upplýsingarnar. Veita skal upplýsingar um framgang verksins, niðurstöður hávaðamælinga, tímalengd framkvæmdar, hvaða þættir framkvæmda séu líklegir til að valda ónæði og hvenær unnið verði að þeim þáttum.
  5. Á vefsíðunni skal vera einföld og aðgengileg leið fyrir íbúa til að koma á framfæri kvörtunum og ábendingum vegna framkvæmdarinnar. 6. Framkvæmdaaðili skal halda skrá yfir kvartanir og ábendingar sem honum berast sem og viðbrögð hans við því og er skylt að miðla þeirri skrá til viðkomandi stjórnvalda.

Þá er undanþágan bundin fyrirvara um endurskoðun ef í ljós kemur á grundvelli eftirlits, mælinga, kvartana eða annarra upplýsinga sem heilbrigðiseftirlitin meta fullnægjandi að framkvæmdir falli undir eða hafi áhrif sem svara til sérstaklega hávaðasamra framkvæmda í skilningi 3. gr. reglugerðar um hávaða. Við matið skal einnig horfa til viðmiðs fyrir heilsuspillandi hávaða í 7. gr. reglugerðarinnar. Við slíka endurskoðun er heimilt að setja undanþágunni frekari skilyrði, takmarka gildistíma hennar eða afturkalla hana, eftir því sem tilefni er til.

Tilkynning ráðuneytisins