Frétt

Tillaga að starfsleyfi fyrir gististað að Hamrabrekkum, Mosfellsbæ

Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Oak House, kt. 581122-0980, starfsleyfi til reksturs gististaðar í flokki II í framhaldi af umsókn þar um.

Leyfið tekur til reksturs gististaðar í flokki II, sbr. ákvæði IV. kafla reglugerðar um  hollustuhætti nr. 903/2024. Við reksturinn ber að fylgja ákvæðum sem fram koma í reglugerðum um hollustuhætti og ákvæðum reglugerðar nr. 803/2023 um meðhöndlun úrgangs. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfinu.

Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjögurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.

Drög að starfsleyfi