Frétt

Tillaga að tímabundnu starfsleyfi fyrir útihátíð, Víðistaðatúni, Hafnarfirði

Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Garcia Events ehf., kt. 410322-1290, tímabundið starfsleyfi til að starfrækja útihátíð í tilefni sólmyrkvans á Víðistaðatúni, Hafnarfirði þann 12. ágúst 2026 í framhaldi af umsókn þar um.

Leyfið tekur til reksturs útihátíðar, sbr. ákvæði VII. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 903/2024. Fyrirhugaður gildistími starfsleyfis er 12. ágúst 2026. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfi.

Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjörgurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.

Drög að starfsleyfi