Frétt

Tillaga að starfsleyfi fyrir niðurrif Álfatröð 3-5

Heilbrigðisefirlitiið hefur unnið tillögu að tímabundnu starfsleyfi vegna niðurrifs Álfatraðar 3 og 5. Starfsleyfið tekur til niðurrifs íbúðarhúsnæðis og nær til hreinsunar á lóð, húsum og lausamunum og flutningi þess í viðeigandi förgun og endurvinnslu. Lagt er til að gildistími starfsleyfis verði 15. mars til 1. ágúst 2022.

Heilbrigðiseftirlitið hefur unnið tillögu að tímabundnu starfsleyfi vegna niðurrifs Álfatröð 3 og 5 . Starfsleyfið tekur til niðurrifs íbúðarhúsnæðis og nær til hreinsunar á lóð, húsum og lausamunum og flutningi þess í viðeigandi förgun og/eða endurvinnslu. Í tillögunni er lagt til að um starfsemina gildi starfsleyfisskilyrði fyrir tímabundinn atvinnurekstur vegna niðurrifs húsa og annarra mannvirkja og almenn starfsleyfisskilyrði fyrir mengandi starfsemi.

Lagt er til að leyfið gildi frá 15. mars til 1. ágúst 2022. Leyfið er gefið út með skilyrðum um að ákvæðum gildandi laga og reglugerða um hollustuhætti og mengunarvarnamál hverju sinni sé fylgt og einnig ákvæðum III. kafla reglugerðar nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs, þar sem fjallað er um skyldur rekstrar aðila til að draga úr myndun úrgangs, stuðla að réttri meðhöndlun hans, endurnotkun, endurnýtingu, geymslu og förgun ásamt ákvæðum um þrifnað lóða sem og neðangreindum starfsleyfisskilyrðum sem um starfsemina gilda.