Tillaga að starfsleyfi fyrir íþróttahús við Snælandsskóla
Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Kópavogsbæ kt.700169-3759 starfsleyfi til að reka íþróttahús við Snælandsskóla í framhaldi af umsókn sveitarfélagsins þar um.
Leyfið tekur til reksturs íþróttahúss við Snælandsskóla, Víðigrund 2, Kópavogi sbr. ákvæði VIII. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr.903/2024. Við reksturinn ber að fylgja ákvæðum sem fram koma í reglugerðum um hollustuhætti og ákvæðum reglugerðar nr.803/2023 um meðhöndlun úrgangs. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfinu.
Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjörgurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.