Tillaga að starfsleyfi fyrir Blueberry Hills ehf., Mosfellsbæ
Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Blueberry Hills ehf., kt. 500419-0160 starfsleyfi til að reka gistingu í flokki II - frístundahús að Hramrabrekkum 15, Mosfellsbæ í framhaldi af umsókn þar um.
Leyfið tekur til reksturs gististaðar í flokki II - frístundahús, sbr. ákvæði V. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 903/2024. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfinu.
Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjörgurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.