Frétt

Tillaga að endurnýjun starfsleyfis Olís, Garðabæ

Heilbrigðiseftirlitið hyggst endurnýja starfsleyfi Olís ehf., kt. 500269-3249 til reksturs bensínafgreiðslustöðvar í framhaldi af umsókn þar um.

Leyfið tekur til reksturs bensínafgreiðslustöðvar, sbr. ákvæði 5. gr. reglugerðar 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. Við reksturinn ber að fylgja ákvæðum laga og reglugerða um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, t.a.m. reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfinu.

Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjörgurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.

Drög að starfsleyfi