Tillaga að endurnýjun starfsleyfis fyrir Seiglan þjónustumiðstöð, Hafnarfirði.
Heilbrigðiseftirlitið hyggst endurnýja starfsleyfi Seiglunnar, kt. 580690-2389 til reksturs samkomuhúss í framhaldi af umsókn þar um.
Leyfið tekur til reksturs samkomuhúss, sbr. ákvæði IV. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 903/2024. Við reksturinn ber að fylgja ákvæðum sem fram koma í reglugerðum um hollustuhætti og ákvæðum reglugerðar nr.803/2023 um meðhöndlun úrgangs. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfinu.
Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjörgurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.