Tillaga að endurnýjun starfsleyfi fyrir bensínstöð að Óseyrarbraut 23, Hafnarfirði
Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Atlantsolíu ehf., kt. 590602-3610 endurnýjun starfsleyfis til reksturs bensínafgreiðslustöð í framhaldi af umsókn þar um.
Leyfið tekur til reksturs bensínafgreiðslustöðvar, sbr. ákvæði 5. gr. reglugerðar 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. Við reksturinn ber að fylgja ákvæðum laga og reglugerða um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, t.a.m. reglugerð nr. 884/2017 um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi.
Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfinu.
Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjögurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.