Frétt

Tillaga að starfsleyfi fyrir sjúkraþjálfun og samkomuhús, Suðurgötu, Hafnarfirði

Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Takti, miðstöð Parkisonssamtakanna, kt. 461289-1779, starfsleyfi til að reka sjúkraþjálfun og samkomuhús að Suðurgötu 41, Hafnarfirði, í framhaldi af umsókn þar um.

Leyfið tekur til reksturs sjúkraþjálfunar og samkomuhúss, sbr. ákvæði IV. og VIII. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 903/2024.

Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjörgurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.

Drög að starfsleyfi