Frétt

Tillaga að starfsleyfi fyrir sláturhús og kjötvinnslu að Völuteig 2, Mosfellsbæ

Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Matfugli, ehf., kt. 471103-2330 endurnýjun á starfsleyfi til reksturs sláturhúss og kjötvinnslu í framhaldi af umsókn þar um.

Leyfið tekur til reksturs sláturhúss með kjötvinnslu, sbr. ákvæði 5. gr. reglugerðar 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. Við reksturinn ber að fylgja ákvæðum laga og reglugerða um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, t.a.m. reglugerð um fráveitur og skólp og reglugerð um meðhöndlun úrgangs. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfinu.

Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjögurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.

Drög að starfsleyfi