Tillaga að starfsleyfi fyrir jarðborun á Reykjum, Mosfellsbæ. Borhola - Reyk 3
Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Veitum ohf., kt. 501213-1870, starfsleyfi til jarðborunar í framhaldi af umsókn þar um.
Leyfið tekur til jarðborunar niður á allt að 1500 m dýpi, sbr. ákvæði 5. gr. reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. Leyfið nær til einnar borholu af sjö sem ráðgert er að boraðar verði á Reykjum, Mosfellsbæ.
Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfinu.
Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjögurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.