Frétt

Tillaga að starfsleyfi fyrir smurstöð og dekkjaverkstæði, Suðurhellu 9, Hafnarfirði

Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Pitstop Vellir ehf., kt. 460825-1050, starfsleyfi til reksturs dekkjaverkstæðis með smurþjónustu í framhaldi af umsókn þar um.

Leyfið tekur til reksturs dekkjaverkstæðis með smurþjónustu, sbr. ákvæði 5. gr. reglugerðar 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. Við reksturinn ber að fylgja ákvæðum laga og reglugerða um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, t.a.m. reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfinu.

Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjögurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.

Drög að starfsleyfi