Frétt
Tillaga að starfsleyfi fyrir ökuskóla að Álfhellu 23, Hafnarfirði
Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Ökuskóla 3 ehf., kt. 650213-0330, starfsleyfi til reksturs skólahúsnæðis í framhaldi af umsókn þar um.
Leyfið tekur til reksturs skólahúsnæðis, sbr. ákvæði VI. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 903/2024. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfi.
Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjögurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.