Frétt

Tillaga að starfsleyfi fyrir bensínafgreiðslustöð að Reykjavíkurvegi 54, Hafnarfirði

Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita N1 ehf., kt. 411003-3370 endurnýjun á starfsleyfi til reksturs bensínafgreiðslustöðvar í framhaldi af umsókn þar um.

Leyfið tekur til reksturs bensínafgreiðslustöðvar, sbr. ákvæði 5. gr. reglugerðar 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. Við reksturinn ber að fylgja ákvæðum laga og reglugerða um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, t.a.m. reglugerð um varnir gegn olíumengun frá starfsemi í landi og reglugerð um meðhöndlun úrgangs. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfinu.

Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjögurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.

Drög að starfsleyfi