Innköllun á Ora marineraðri síld í bitum
ORA og ÓJK- ÍSAM innkalla marineraða síld vegna glerbrots
Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) varar við neyslu á tiltekinni lotu af Ora marineraðri síld í bitum 590g vegna glerbrots sem fannst í einni krukku.
ORA og ÓJK- ÍSAM hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlitið.
Innköllunin á einungis við eftirfarandi lotu L94046 með best fyrir 16/06/2022
- Vörumerki: ORA
 - Vöruheiti: Marineruð síld 590g
 - Lotunúmer/best fyrir dagsetning: L94046, BF: 16/06/2022
 - Strikamerki: 5690519000636
 - Geymsluskilyrði: Kælivara
 - Framleiðandi: Ora (Myllan-Ora ehf) kt. 660169-1729
 - Framleiðsluland: Ísland
 - Dreifingaraðili: ÓJ&K-ÍSAM ehf., Blikastaðavegur 2-8, 112 Reykjavík
 
Viðskiptavinir sem keypt hafa vöru með fyrrgreindri dagsetningu eru beðnir um að neyta hennar ekki og skila í næstu verslun eða hafa samband við dreifingaraðila ÓJK-ÍSAM í síma 522-2700 eða í tölvupósti tinna@ojk-isam.is
