Frétt

Innköllun á Mama tom yum pork núðlum

vegna glerbrots

Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis varar við neyslu á tiltekinni lotu af Mama tom yum pork 60 g vegna glerbrots sem fannst í vörunni.

Fyrirtækið Lagsmaður (fiska.is) hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlitið.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi lotu 1D4SD11 með best fyrir 28.4.2022

  • Vörumerki: Mama
  • Vöruheiti: Instant noodles with tom yum pork flavour 60g
  • Innflytjandi: Lagsmaður ehf. / Fiska.is
  • Best fyrir / Lotunúmer: 28-04-2022 / 1D4SD11
  • Framleiðsluland: Tæland
  • Framleiðandi: Thai president foods public company limited
  • Geymsluskilyrði: Á þurrum stað
  • Dreifing: Verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur

Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna eru beðnir um að farga henni eða skila henni gegn endurgreiðslu í verslun Fiska.is á Nýbýlavegi 6 í Kópavogi.

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 6914848 eða í gegnum tölvupóst fiska@fiska.is.