Frétt

Innköllun á Grissini sesam

Varan inniheldur ethylen oxide sem ekki er leyfilegt að nota í matvælaframleiðslu.

Krónan hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi lotu með best fyrir 18.03.2021

Vörumerki: Buon Pane

Vöruheiti: Grissini

Strikanúmer: 8005221101842

Nettó magn: 1 kg.

Best fyrir: 18.3.2021

Framleiðsluland: ítalía

Dreifingaraðili Krónan

Dreifing: Krónan Akrabraut, Krónan Fitum, Krónan Flatahrauni, Krónan Grafarholti, Krónan granda, Krónan Lindum, Krónan Mosfellsbæ, Krónan Norðurhellu, Krónan Selfossi, Krónan Vallarkór.

Krónan bendir viðskiptavinunum sínum sem verslað hafa vöruna á að skila henni í viðkomandi verslun.

Nánari upplýsingar veitir:

Kristín Þorleifsdóttir

Netfang: kristin@kronan.is