Frétt
Innköllun Popping candy macaron biscuit strawberry flavor (132g) frá Gangfu sem hefur verið til sölu í versluninni Fiska.
Fyrirtækið Lagsmaður (Fiska.is) hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) þar sendingin fór ekki í gegnum landamæraskoðun Við komuna til Hollandi og inn í EES.
Upplýsingar um vöruna sem innköllun einskorðast við:
- Vöruheiti: Popping candy macaron biscuit strawberry flavor
- Vörumerki: GANGFU
- Framleiðandi: Fujian Gangfu Lebao Food Development Co., Ltd.
- Framleiðsluland: Kína
- Geymsluþolsdagsetning: 15.03.2027
- Strikanúmer: 5060886820975
- Nettóþyngd: 132g
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Dreyfing: Varan var seld í verslun Fiska á Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogi
Viðskiptavinum sem hafa verlsað vöruna og eiga hana ennþá til er bent á að farga vörunni eða skila í verslun Fiska Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogi.
