Frétt

Innköllun á Risa hraun súkkulaði frá Góu Lindu sælgætisgerð. Aðskotahlutir eða vírþræðir hafa fundust í nokkrum bitum

Góa Linda sælgætisgerð ehf. hefur ákveðið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) að innkalla vöruna RISAHRAUN, 50 g. Ástæða innköllunarinnar er sú að vírþræðir úr vírbursta hafa fundist í nokkrum stykkjum.

Neðangreindar upplýsingar einskorðast við innkallað vöru.

  • Framleiðandi: Góa Linda sælgætisgerð
  • Vörumerki: Góu
  • Vöruheiti: Risahraun
  • Best fyrir dagsetning: 23.09.2027
  • Nettó þyngd: 50 grömm
  • Strikanúmer: 5690558001052
  • Dreifing: Verslanir um landa allt

Þeir sem hafa verslað umrædda vöru og eiga enn þá til er beðnir að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til Góu Lindu sælgætisgerða, Garðahrauni 2, 210 Garðabæ.

Góa biður viðskiptavini sína velvirðingar á þessum mistökum.

Fréttatilkynning frá Góu Lindu Sælgætisgerð