Innköllun á vörunni Stormur Romm 700 ml. vegna aðskotahluts (glerbrot) sem fannst í einni flösku.
Fyrirtækið Og natura/Íslensk hollusta ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað vöruna Stormur Romm í 700 ml flöskum eftir að glerbrot fannst í einni flösku úr tiltekinni framleiðslulotu.
Innköllunin einskorðast við flöskur úr framleiðslulotu 05.4.
Vörumerki: Og natura.
Vöruheiti: Stormur Romm.
Nettómagn: 700 ml.
Umbúðir: Gler.
Framleiðandi vörunnar og ábyrgðaraðili er: Og natura/Íslensk hollusta ehf.
Framleiðsluland: Ísland.
Lotunúmer: 05.4
Dreifing: Verslanir ÁTVR, Fríhöfnin Keflavíkurflugvelli og veitingahús.
Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna eru beðnir um að neyta hennar ekki.
Nánari upplýsingar varðandi innköllunina, skil og endurgreiðslu veitir framleiðandi og ábyrgðaraðili vörunnar:
Og natura/Íslensk hollusta ehf.
Hólshraun 5.
220 Hafnarfjörður.