Innköllun á Veribest hrísgrjónum (Basmati) vegna leysiefna sem fundust í vörunni við sýnatöku.
Matarbúðin Nándin í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF) innkallar Basmati hrísgrjón.
Upplýsingar um vöruna.
Vöruheiti: Basmati hrísgrjón
Vörumerki: Veribest
Innflytjandi: Garri
Framleiðandi: Wiik & Co
Pökkunaraðili: Nándin
Best fyrir dagsetning: 23.09.2026
Nettó þyngd: 800g
Geymsluskilyrði: Þurrvara
Varan var seld í 800g pokum á tímabilinu 2. september 2025 til 25. janúar 2026.
Viðskiptavinum er bent á að farga vörunni eða skila til Matarbúðarinnar Nándin Austurgötu 47, 220 Hafnarfirði, matarbudin@matarbudin.is, s. 4701300.
Nándin biður viðskiptavini sína afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.