Frétt

Innköllun á sælgæti "Vattenmelon bitar" vegna aðskotahlutar

Heildverslunin Core ehf. hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis vegna aðskotahlutar.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Candy people
  • Vöruheiti: Sura Vattenmelon bitar 80 gr.
  • Innflytjandi: Core heildsala
  • Best fyrir dagsetningar / lotunúmer. 05/2022 / L-0129
  • Dreifing: Bónus, Hagkaup, Fjarðarkaup og Heimkaup

    Neytendur sem hafa keypt tilgreinda vöru eru beðnir um að skila vörunni í viðeigandi verslun eða á skrifstofu Core Heildsölu að Víkurhvarfi 1, 203
    Kópavogi.

Fréttatilkynning frá Core heildsölu