Frétt

Innköllun á Haribo Favoritos vegna vanmerkingar m.t.t. tungumála.

Costco hefur innkallað Haribo Favoritos sælgæti í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, (HEF) vegna vanmerkingar m.t.t. tungumála. Merkingar voru eingöngu á spænsku og portúgölsku.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:


Vörumerki: Haribo.

Vöruheiti: Haribo Favoritos.

Framleiðandi: Haribo

Innflytjandi: Costco Ísland

Framleiðsluland: Spánn

Vörunúmer: #436591

Lotunúmer: 341

Best fyrir dagsetning: 05/2026

Geymsluskilyrði: Geymist á þurrum stað við stofuhita

Dreifing: Costco Ísland

Viðskiptavinir sem eiga vöruna enn til er bent á að skila henni gegn endurgreiðslu í verslun Costco í Kauptúni 3, Garðabæ.

Costco biður viðskiptavini velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Bréf til viðskiptavina/meðlima

Haribo Favoritos (mynd)

Haribo Favoritos (mynd)