Innköllun á RANA pestósósu með hvítlauk þar sem best fyrir dagsetningu vantar á umbúðir.
Krónan hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) innkallað Rana pestósósu með hvítlauki. Innköllun er gerð þar sem best fyrir dagsetningu vantar á umbúðir vörunnar.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vöruheiti: RANA pestósósa með hvítlauki
Vörumerki: Rana
Nettómagn: 140 g
Framleiðandi: Pastificio RANA S.p.A
Innflytjandi: Krónan, Dalvegi 10-14
Framleiðsluland: Ítalía
Lotunúmer/bestfyrirdagsetningar: Vantar á umbúðir
Geymsluskilyrði: Kælivara
Dreifing: Verslanir Krónunnar
Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna í verslunum Krónunnar er bent á að skila vörunni í viðkomandi verslun gegn fullri endurgreiðslu. Krónan biður viðskiptavini sína afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda. Fyrir nánari upplýsingar um innköllun vörunnar er hægt að senda tölvupóst á netfangið innkallanir@kronan.is.
