Frétt

Innköllun á Preppup kjúklingapasta vegna listeríu

Kjúklingapasta með lotunúmer / best fyrir dagsetningu L 112 B.F. 25.05.21

Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis varar neytendur við neyslu á kjúklingapasta með lotunúmer / best fyrir dagsetningu L 112 B.F. 25.05.21 vegna greiningar á listeríu (Listeria monocytogenes). Fyrirtækið Mealprep ehf.  hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.

Upplýsingar um vöruna:

  • Vörumerki: Preppup
  • Vöruheiti: Kjúklingapasta
  • Framleiðandi: Matarkompaní ehf.
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: L 112 B.F. 25/05/21
  • Geymsluskilyrði: 0-4°C
  • Dreifing: Nettó, Iceland, Hagkaup, Krambúðin, Kjörbúðin og á heimasíðu www.preppup.is    

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og skila til verslunar eða fyrirtækisins gegn endurgreiðslu. Hægt er að hafa samband í síma 519-9887 eða með tölvupósti info@preppup.is til að fá frekari upplýsingar.

Listeria monocytogenes getur orsakað sjúkdóm bæði hjá mönnum og dýrum og kallast þessi sjúkdómur listeriosis. Einkenni sjúkdómsins eru mild flensueinkenni, vöðvaverkir, hiti og stundum ógleði og niðurgangur. Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóðeitrun og getur sjúkdómurinn einnig valdið fósturláti. Í einstaka tilfellum getur bakterían valdið dauða, þá er yfirleitt um að ræða einstaklinga sem eru með skert ónæmiskerfi.
Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.