Frétt

Innköllun á þremur tegundum af MOMA hafragraut. Ástæða innköllunar er grunur um að mengun frá músum sé að finna í vörunni.

Karl K. Karlsson ehf. innkallar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) þrjár tegundir af Moma Porridge Pot (hafragraut) vegna gruns um að mengun frá músum geti fundist í vörunni.

Innköllun einskorðast við neðan greindar lotur og best fyrir dagsetningar.

  • Vörumerki: Moma
  • Vöruheiti: Moma Golden Syrup Porridge Pot, Moma Cranberry og Raisins Porridge Pot og Moma Almond Butter & Salted Caramel Porridge Pot
  • Framleiðandi: Moma Foods
  • Framleiðsluland: Bretland
  • Innflytjandi: Karl K. Karlsson ehf
  • Nettó þyngd: 55-70g
  • Strikanúmer: 5060146372046, 5060146370431, 5060146370714
  • Geymsluskilyrði: Þurrvara
  • Lotunúmer og best fyrir dagsetningar eftir tegundum.

Varna var seld í eftirtöldum verslunum: Hagkaup, Samkaup, Nettó, Kjörbúðum, Fjarðarkaup og Hlíðarkaup Sauðárkróki.

Þeir sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í fyrrgreindar verslanir eða til Karls K. Karlssonar ehf, Víkurhvarfi 1, Kópavogi, gegn fullri endurgreiðslu.

Karl K. Karlsson biður viðskiptavini sína afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda.

Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband í síma: 540-9000 eða senda tölvupóst á netfangið: soludeild@kallik.is

Fréttatilkynning frá Karl K. Karlssyni.

Fréttatilkynning frá MOMA FOOD framleiðanda vörunnar.