Innköllun á pistasíum, söltuðum og ristuðum merktar Krónunni vegna óleyfilegs varnarefnis.
Fyrirtækið Krónan ehf. hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF) eftir að varnarefnið Clothianidin mældist í vörunni.
Upplýsingar um vöruna:
- Vörumerki: Krónan
- Vöruheiti: Pistasíuhnetur ristaðar og saltaðar
- Strikamerki: 5694310451291
- Best fyrir dagsetning: 03.01.2027
- Nettómagn: 200 g
- Framleiðandi: Ziba Naghsh
- Innflytjandi: Salvía ehf.
- Dreifing: Verslanir Krónunnar.
Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna í verslunum Krónunnar er bent á að skila henni í viðkomandi verslun gegn fullri endurgreiðslu. Krónan biður viðskiptavini sína afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda. Fyrir nánari upplýsingar um innköllun vörunnar er hægt að senda tölvupóst á netfangið innkallanir@kronan.is.
Fréttatilkynning frá Krónunni.
