Innköllun á Parle-G Biscuits vegna aðskotaefna yfir leyfilegum hámarksgildum
Fyrirtækið Lagsmaður ehf./Fiska.is hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF), innkallað Parle-G Original Gluco Biscuits sem Fiska.is hefur haft til sölu.
Ástæða innköllunarinnar er að tvö aðskotaefni, 3-mónóklórprópan-1,2-díól (3-MCPD) og glýsidýlfitusýruesterar (e. glycidyl fatty acid esters, GE), mældust yfir leyfilegum hámarksgildum.
Upplýsingar um vörunar sem innköllun einskorðast við.
- Framleiðsluland: Indland
- Framleiðandi: Parle Products Pvt. Ltd
- Vörumerki: Parle-G
- Vöruheiti: Parle-G Original Gluco Biscuits
- Nettómagn: 79,9 g
- Lotunúmer: LM00018430
- Best fyrir: 17.12.2026
- Geymsluskilyrði: Þurrvara
- Strikamerki: 8901719101045
- Dreifing: Varan var seld í verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogi.
Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki, heldur farga henni eða skila henni í verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogi.
Fréttatilkynning frá Lagsmanni ehf
