Innköllun á Ora maískorni
Fyrirtækið Ora hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness ( HEF) innkallað Ora maískorn 420g vegna hugsanlegs málm aðskotahluts í dósinni.
Upplýsingar um vöru sem er innkölluð.
Vörumerki: Ora
• Vöruheiti: Maískorn, 420g
• Framleiðandi: ORA (Myllan-ORA ehf.) kt 660169-1729
• Framleiðsluland: Ísland
• Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Lotunúmer L105293, BF. 21.01.2030
• Geymsluskilyrði: Hilluvara
• Dreifing: Aðföng,
Krónan ehf Vöruhótel,
Samkaup hf - Samskip Vöruhús
Neytendum sem keypt hafa vöruna með þessu lotunúmeri er bent á að neyta hennar ekki.
Neytendur geta skilað vörunni til OJK-ÍSAM ehf, Blikastaðavegur 2-8, 112 Reykjavík eða ORA, Vesturvör 12, 200 Kópavogur eða þar sem varan var keypt.
Frekari upplýsingar veitir gæðastjóri ORA í síma 856 2780 eða á netfangið quality@ora.is.