Frétt

Innköllun á Nina möluðum melónufræjum vegna aðskotaefna

Fiska.is / Lagsmaður hefur innkalla vöruna þar sem hún inniheldur Salmonella E1 og Aflatoxín yfir mörkum.

Fyrirtækið Lagsmaður (fiska.is) hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF)

Upplýsingar um vöruna sem innköllunin einskorðast við:

• Vörumerki: Nina international

• Vöruheiti: Ground Egushi 227 gr

• Best fyrir: 1.1.2024

• Nettómagn: 227 g

• Geymsluskilyrði: Þurrvara

• Framleiðandi: Nina International, 3717 West St, Landover, MD 20785, Bandaríkin

• Framleiðsluland: Ghana

• Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Fiska.is Nýbýlavegi 6 200 Kópavogur

Fréttatilkynning fyrirtækisins