Frétt

Innköllun á nautamaga sem vegna óvissum um örveruástand vörunnar.

Fyrirtækið Lagsmaður (fiska.is) hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness ( HEF) innkallað nautamaga vegna óvissu um örverástand vörunnar.

Upplýsingar um vöruna:

  • Vörumerki: Afroase
  • Vöruheiti: Cow Stomach Abodi
  • Best fyrir: Allar dagsetningar
  • Nettóþyngd: 1 kg
  • Geymsluskilyrði: Frystivara
  • Framleiðandi: Asia Express Food, Kilbystraat 1, 8263 CJ Kampen,
  • Framleiðsluland: Holland.

Þeir sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í verslun Fiska.is, Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogur.

Sýnihorn af vörunni

Fréttatilkynning frá Fiska