Frétt

Innköllun á Kraft-Testbooster, Gyðju lífskraft og Fjörugrösum/klóþang framleitt af Ingling ehf. sökum vanmeringa á ónæmisvöldum n.t.t. snefilefni af fisk, krabba og skelfiski.

Fyrirtækið Ingling ehf. hefur í samráði við við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað vörurnar Kraft Test booster Gyðja og Fjörugrös/ klóþang. Ástæða innköllunar er vanmerking á að varan gæti innihaldið snefilefni af ónæmisöldunum fisk, krabba og skelfisk.

Vörumerki: Ingling.

Vöruheiti: Kraftur Test Booster 180 hylki, Gyðja 180 hylki, Kraftur, Test Booster, 180 hylki. Gyðja, Lífskraftur, 180 hylki.

Harvested Irish sea moss/with Knotted wrack 60hylki. og Fjörugrös/klóþang 180 hylki.

Strikamerki: Öll lotunúmer.

Framleiðandi: Ingling ehf.

Framleiðsluland: Ísland.

Dreifing: Mamma veit best, Heilsuver, Reykjavíkur Apótek - Granda, Mistur, Sveitarbúðin UNA - Hvolsvelli, Vistvæna búðin,-Akureyri, Líkami og boost - Kveflavík, Kush - Árbæ.

Þeir sem eiga umrædda vöru ennþá til og eru með ofnæmi eða óþol fyrir fisk, krabba eða skelfisk eggjum eru beðnir um að neyta hennar ekki, farga eða skila henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.

Ingling ehf. biður viðskiptavini sína afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda.

Fyrir nánari upplýsingar um innköllun varanna er hægt að senda tölvupóst á netfangið

ingling@ingling.is.

Fréttatilkynning Ingling ehf.