Frétt

Innköllun á kókospálmasykri frá H-Berg vegna málmaðskotahlutar

Fyrirtækið H-Berg hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness ( HEF) þar sem málmaðskotahlutur fannst í vörunni.

Fyrirtækið H-Berg ehf. hefur innkallað Kókospálmasykur vegna málmaðskotahlutar.

  • Vörumerki: H-Berg ehf.
  • Vöruheiti: Kókospálmasykur
  • Framleiðandi: H-Berg ehf.
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Nettóþyngd: 300g
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Lotunúmer: 220501 og best fyrir (B.F): 06/27
  • Geymsluskilyrði: Þurrvara
  • Dreifing: Fjarðakaup og verslanir Krónunnar og Hagkaups.

H-Berg biður þá viðskiptavini sem enn eiga vöruna að farga henni eða skila henni gegn endurgreiðslu til H-Bergs að Grandatröð 12, 220 Hafnarfirði eða í þá verslun sem hún var keypt.

Fréttatilkynning frá H-Berg