Innköllun á Kamis Gozdziki negulnöglum vegna óleyfilegra varnarefna.
Fyrirtækið Market ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað Kamis / negulnagla vegna óleyfilegs varnarefnis n.tt. Chlorpyrifos er að finna í vörunni.
Umrædd innköllun á við um neðangreinda lotu.
Upplýsingar um vöruna:
Vörumerki: Kamis.
Vöruheiti: Gozdziki (8g).
Framleiðandi: McCormik Polska S.A.
Innflytjandi: Market ehf.
Framleiðsluland: Pólland.
Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 0002787537 / 08.02.2028.
Strikanúmer: 5900084274098
Dreifing: Euro Market Hamraborg 9.
Þeir sem eiga umrædda vöru enn til eru beðnir um að neyta hennar ekki, farga eða skila henni í næstu Euromarket verslun, Smiðjuvegi 2, Hamraborg 9 eða Stakkholti 4b.

