Frétt

Innköllun á Hagkaup Kokteilsósa vegna vanmerkingar á ofnæmisvöldum

Fyrirtækið Myllan-ORA hefur innkallað Hagkaup Kokteilsósu í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar,Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes.

Ástæða innköllunarinnar er vanmerking ofnæmisvalda. Í innihaldslýsingu vantar að tilgreina

SELLERÍ sem ofnæmisvald.

Upplýsingar um vöruna

Vörumerki: HAGKAUP

Vöruheiti: HAGKAUP Kokteilsósa

Framleiðandi: Myllan-Ora ehf.

Framleiðsluland: Ísland

Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: BF. 04.10.2026

Geymsluskilyrði: Kælivara

Dreifing: Hagkaup

Endurmerking hefur farið fram í verslunum.

Athugið að varan er ekki skaðleg þeim sem ekki eru með ofnæmi eða óþol fyrir viðkomandi ofnæmisvöldum.

Ef viðkomandi sósa er merkt með þessum ofnæmisvöldum: sinnepi, fiski, eggi, mjólk, soja og

selleríi, þá hefur hún verið endurmerkt með réttri innihaldslýsingu og ekki þarf að skila henni.

Ef þú keyptir vöruna fyrir 10.07.2026 er hún rangt merkt. Þú getur skilað henni í næstu Hagkaupsverslun og fengið hana endurgreidda.

Allir brúsar sem keyptir voru eftir 11.07.2026 hafa verið rétt endurmerktir

Fréttatilkynnig fyrirtækisins