Innköllun á frosnum hindberjum frá Grön Balance þar sem skordýr fannst í pakkningu.
Krónan hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) innkallað frosin hindber frá Grön Balance. Innköllun er gerð eftir að skordýr fannst í pakkningu.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:
Vöruheiti: Hindber frosin
Vörumerki: Grön Balance
Nettómagn: 150 g
Framleiðandi: Dagrofa ApS
Innflytjandi: Krónan, Dalvegi 10-14
Framleiðsluland: Pólland
Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 19.03.2028
Geymsluskilyrði: Frystivara
Dreifing: Krónan, Dalvegi 10-14
Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna í verslunum Krónunnar er bent á að skila henni í viðkomandi verslun gegn fullri endurgreiðslu. Krónan biður viðskiptavini sína afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda.
Fyrir nánari upplýsingar um innköllun vörunnar er hægt að senda tölvupóst á netfangið innkallanir@kronan.is.
