Frétt

BRIKK súkkulaðikaka innkölluð vegna villandi merkinga á ofnæmisvöldum og rangt merktra innihaldsefna

BRIKK eldhús ehf. innkallar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) BRIKK Súkkulaðiköku.
Kakan inniheldur ofnæmisvaldinn möndlusmör og merkt sem slíkt en á öðrum stað á umbúðum er valkvæð varúðarmerking sem tilgreinr að kakan gæti innihaldið snefilmagn af möndlum.
Þessi framsetning getur verið villandi fyrir neytendur og jafnvel hættuleg.

Merkingar á innihaldsefnum eru ekki með réttum hætti: Uppruni olíu ekki tilgreindur natron rangnefni yfyrir þetta aukaefni sem og flokksheiti vantar,súkkulaði magnmerking fyrir ´sukkulaði vantar, sólblómalesitín ekki merkt með flokkheiti og næringargildi ekki sett fram sem meðalgildi í næringargildistölfunni.

Upplýsingar um vöruna:

  • Framleiðandi: Brikk Eldhús ehf
  • Vörumerki: BRIKK
  • Vöruheiti: Súkkulaðikaka
  • Geymsluþol: Best fyrir dagsetning. 2/9/26
  • Nettó þyngd: 650 g
  • Strikanúmer: 5694230457311
  • Dreifing: Verslanir Krónunar Mosfellsbæ, Grafarholti, Bíldshöfða, Lindum, Akrabraut, Flatarhrauni, Norðurhellu, Austurveri, Skeifunni, Borgartúni, Hallveigarstíg, Granda, Fitjum og Selfossi
    Verslanir Hagkaupa Skeifunni, Garðabæ og Spönginni.

Neytendur með ofnæmi fyrir möndlum eru beðnir um að neyta vörunnar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni til Brikk Eldhús ehf, Dalvegi 32b, 201 Kópavogi, gegn fullri endurgreiðslu.

BRIKK eldhús ehf. biður viðskiptavini sína afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Fyrir nánari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á netfangið: BRIKK@BRIKK.IS