Frétt
Innköllun á Bapao með nautahakki. Það er ekki hægt að tryggja að hakkið sé öruggt.
Fyrirtækið Lagsmaður (fiska.is) hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF)
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Tjendrawasih
Vöruheiti: Bapao beef
Best fyrir: 6.11.2026 - 9.1.2027 - 12.2.2027
Nettómagn: 120g
Geymsluskilyrði: Frystivara
Framleiðandi: Dutch Bakery Group B.V. (Tjendrawasih), Ivoorstraat 15, 1812 RE Alkmaar,
Netherlands
