Frétt

Innköllun á bleikum Appolo Lakkrís bitum frá Góu Lindu sælgætisgerð. Aðskotahlutir eða vírþræðir hafa fundust í nokkrum bitum

Góa Linda sælgætisgerð hefur ákveðið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) að innkalla bleika Appolo lakkrísbita. Ástæða innköllunar er sú að vírþræðir úr vírbursta fundist í nokkrum bitum.

Neðangreindar upplýsingar einskorðast við innkallað vöru.

  • Framleiðandi: Góa Linda sælgætisgerð
  • Vörumerki: Appolo
  • Vöruheiti: Lakkrís bitar bleikir.
  • Best fyrir dagsetning: 23.09.2027
  • Nettó þyngd: 250 grömm
  • Strikanúmer: 5690558002721
  • Dreifing: Verslanir Hagkaups Eiðistorgi, Skeifunni, Spöng, Smáralind og Garðabæ og Akureyri, Nettó verslun Salavegi, Nettó verslun Húsavík og Kaupfélag Skagfirðinga.

Þeir sem hafa verslað umrædda vöru og eiga enn þá til er beðnir að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til Góu Lindu sælgætisgerða, Garðahrauni 2, 210 Garðabæ.

Góa biður viðskiptavini sína velvirðingar á þessum mistökum.

Fréttatilkynning frá Góu Lindu sælgætisgerð

Mynd af umbúðum