Tillaga að tímabundnu starfsleyfi fyrir bæjar- og tónlistarhátíð, Strandgötu, Hafnarfirði
Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Bæjarbíó slf., kt. 611116-0550, tímabundið starfsleyfi til að starfrækja bæjar- og tónlistarhátíð í Strandgötu, Hafnarfirði, í framhaldi af umsókn þar um.
Leyfið tekur til reksturs útihátíðar, sbr. ákvæði VII. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 903/2024. Fyrirhugaður gildistími starfsleyfis er frá 25.06.2026 til og með 01.08.2026. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfi.
Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjörgurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.