Tillaga að starfsleyfi fyrir Heilsuvernd Vífilsstöðum, Garðabæ.
Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Heilsuvernd Vífilsstaðir ehf., kt. 670922-0570, starfsleyfi til reksturs heilbrigðisstofnunar með móttökueldhúsi í framhaldi af umsókn þar um.
Leyfið tekur til reksturs heilbrigðisstofnunar með móttökueldhús á deildum, sbr. ákvæði VIII. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 903/2024, og reglugerðar nr. 103/2010 um hollustuhætti sem varða matvæli.
Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjörgurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.