Frétt

Innköllun á sælgæti " S-Märke Surt skum" vegna aðskotahlutar

Heildverslunin Core ehf. hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis vegna aðskotahlutar (vír).

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Candy people
  • Vöruheiti: S-Märke Surt skum 70 g
  • Innflytjandi: Core ehf.
  • Best fyrir dagsetning: 14 -08-2022 M4
  • Dreifing: Bónus, Hagkaup, Krónan, Iceland, Krambúðir, Kvikk, 10-11, Extra24, Fjarðarkaup, N1, Olís, Melabúðin og Heimkaup

    Neytendur sem hafa keypt tilgreinda vöru eru beðnir um að skila vörunni í verslun eða á skrifstofu Core Heildsölu að Víkurhvarfi 1, 203
    Kópavogi.