Frétt

Innköllun á Grön Balance sólblómafræjum vegna skordýra sem fundust í vörunni

Fyrirtækið Krónan ehf hefur innkallað vöruna Grön Balance Sólblómafræ í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes vegna skordýra sem fundust í vörunni.

Innköllunin á einungis við vöru með best fyrir dagsetningu 8-8-2023

Upplýsingar um vöruna

• Vörumerki: Grön Balance

• Vöruheiti: sólblómafræ

• Framleiðandi: Valsmøllen

• Innflytjandi: Krónan

• Framleiðsluland: Danmörk

• Geymsluskilyrði: Geymist á þurrum stað við stofuhita.

• Dreifing: Allar verslanir Krónunnar.

Viðskiptavinum sem keypt hafa vöruna í verslunum Krónunnar er bent á að skila henni í viðkomandi verslun og fá endurgreitt. Krónan biður viðskiptavini sína afsökunar á óþægindum sem þetta veldur

Fréttatilkynning frá Krónunni.