Frétt

Innköllun á Pólsku fæðubótaefni Pre-contest pumped vegna óleyfilegs innihaldsefnis.

Bodyzone hefur innkallað vöruna Napalm Pre-contest pumped 350g , Dragon fruit , vegna óleyfilegs innihaldsefnis.

Fyrirtækið Bodyzone hefur innkallað vöruna Napalm Pre-contest pumped 350g , Dragon fruit. Varan inniheldur óleyfilegt innihaldsefni Choline alfoscerate (a-GPC). Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF)

Upplýsingar um vöruna sem innköllunin einskorðast við:

• Vörumerki: FA Fitness Authority

• Vöruheiti: Nalpalm Pre Contest Pumped 350 g, Dragon fruit.

• Best fyrir: 11.2023

• Lotunúmer: NPP211119DFR

• Nettómagn: 350g

• Geymsluskilyrði: Þurrvara

• Framleiðandi: Fitness Authority

• Framleiðsluland: Pólland

• Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Bodyzone ehf, Bæjarlind 6.

Fréttatilkynning fyrirtækisins