Frétt

Drög að starfsleyfi fyrir þvottahús Eyrartröð 2A

Heilbrigðiseftirlitið hefur unnið tillögu að starfsleyfi Nostra að Eyrartröð 2A, Hafnarfirði

Heilbrigðiseftirlitið hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir þvottahús Nostra ræstinga ehf. að Eyrartröð 2A, Hafnarfirði. Leyfið er gefið út með skilyrðum um að ákvæðum laga og reglugerða um hollusthætti og mengunarvarnir hverju sinni, sé fylgt. Umsækjandi starfsleyfis er Nostra ræstingar ehf., kt. 430309-1020.

Leyfið tekur til reksturs þvottahúss sbr. ákvæði 5 gr. reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunareftirlit, liðar 9.8 um þvottahús í X. viðauka við sömu reglugerð. Þá er gerð krafa um að reksturin fylgi ákvæðum reglugerða um hollustuhætti nr. 941/2002 um húsnæði og lóðir auk reglugerðar um meðhöndlun úrgangs nr. 737/2003 ásamt reglugerð um hávaða nr. 724/2008.

Drög að starfsleyfi