Frétt

Tillaga að starfsleyfi fyrir þvottahús að Brúarfljóti 3B, Mosfellsbæ

Heilbrigðiseftirlitið hyggst veita Stay in Iceland ehf., kt. 431016-0360 starfsleyfi til reksturs þvottahúss í framhaldi af umsókn þar um.

Leyfið tekur til reksturs þvottahúss, sbr. ákvæði 5. gr. reglugerðar 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit. Við reksturinn ber að fylgja ákvæðum laga og reglugerða um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, t.a.m. reglugerð um hávaða og reglugerð um meðhöndlun úrgangs. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfinu.

Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjögurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.

Drög að starfsleyfi