Tillaga að starfsleyfi fyrir gistingu í flokki II, Álalind 8, Kópavogi
Heilbrigðiseftirlitið hyggst veitaJ fasteignir ehf., kt. 591223-1000, starfsleyfi til að reka íbúðagistingu í flokki II að Álalind 8, Kópavogi í framhaldi af umsókn þar um.
Leyfið tekur til reksturs gististaðar í flokki II, íbúð, sbr. ákvæði V. kafla reglugerðar um hollustuhætti nr. 903/2024. Meðfylgjandi eru drög að starfsleyfinu.
Heimilt er að gera skriflegar athugasemdir við tillöguna innan fjörgurra vikna frá birtingu þessarar auglýsingar. Þær skulu berast til heilbrigðiseftirlitsins á netfangið hef@heilbrigdiseftirlit.is.