Frétt

Innköllun á Smjördeigslengjum - Lazos frá Productos Jesus S.L. Camino Ancho vegna óleyfilegs tungumáls.

Costco hefur innkallað Lazos Smjördeigslengjur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Seltjarnarnes og Mosfellsbæjar (HEF) vegna óleyfilegs tungumáls. Einungis Spænska kemur fram á umbúðunum.

Upplýsingar um vöruna sem innköllunin einskorðast við

Vörumerki: Dulcinove Pastelería

Vöruheiti: Lazos Cebra de Hojaldre

Framleiðandi: Productos Jesus S.L. Camino Ancho,

Innflytjandi: Costco Ísland

Framleiðsluland: Spánn

Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 13.3.2024 og 12.6.2024

Geymsluskilyrði: Geymist á þurrum stað við stofuhita.

Dreifing: Costco Ísland

Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna í Costco er bent á að skila henni í viðkomandi verslun gegn fullri endurgreiðslu. Viðskiptavinir sem verða mögulega fyrir óþægindum vegna þessa eru beðnir innilega afsökunar

Bréf til neytenda